24maí

Ný bloggsíða þýðir nýtt upphaf ;D

Halló Kalló.. Enn ein bloggsíðan fær að líta dagsins ljós en það er bara af því að það er svo margt að gerast þessa dagana!
Ég er nýkomin heim frá Englandi þar sem að ég fór með GR stelpunum eða; Tinnu, Söndru, Þórunni, Helenu, Berglindi, Ólafíu, Sóley, Margréti og Röggu Sig! Það var ótrúlega gaman og sérstaklega gott að vekja upp svona hressa andann rétt áður en seasonið byrjar! Seasonið byrjar einmitt af alvöru í golfinu um helgina!! Ostamótið í KB-bankamótaröð fullorðinna verður haldið á Akranesi og voru rástímarnir að koma og kom í ljós að ég spila með Valdísi og Röggu kl. 14:20 á laugardeginum, ég gæti ekki verið ánægðari!!! Hólý mólý, þægilegt að vera með þeim. Ég er reyndar að leita mér af kaddý þar sem að Anna Margrét er að fara í próf á mánudaginn í landafræði, litli snáðinn. Ég fékk einkunnirnar mínar í gær og segi stolt frá því að ég féll ekki neinu sem þýðir ekkert endurtektarprófarugl og ég bara komin í langþrátt frí!! Guð ég trúi ekki að það sé komið að þessu, sumarið, golfæðið aftur byrjað eins og Nanna orðaði það áðan.. Þvílík snilld sem þetta verður.
Ég fór með Helenu æfingarhring í morgun á Akranesi og völlurinn er æðislegur miðað við ástand á öðrum íslenskum völlum. Við Helena hlóum mikið enda mikið um skrautlegar taktíktir sem ég ætla ekkert að hafa eftir hérna hehehe.. Ég fer svo aftur á morgun með Tinnu og Valdísi!
Kylfingur kom út í morgun en það er fréttablað GR og gaman að segja frá því en ég gleymdist algerlega í ár! hahahaha mér finnst það bara fyndið, það eru nefnilega svona 2 síður þar sem að verið er að sýna alla sem unnu eitthvað í afrekshópnum, eða á Toyota og KB bankamótaröðinni í fyrra. Þar eru allir nefndir sem lentu nokkur tíman í einhverju sæti en svo kemur bara ekkert um 16-18 ára stelpur og það er auðvitað þar sem ég á að standa. Svo er ég ekki heldur nefnd í landsliðshópnum.. þetta er fyndið af því að þetta kemur út eins og ég sé búin að ljúga því að öllum að ég sé í landsliðinu og hafi unnið mót í fyrrasumar og svona :D ahahahaha.. Sérstaklega konurnar í kórnum sem eru margar hverjar í golfi og fara að skoða og bara WTF er Hanna að ljúga! hahaha..

Úff ég ætla að fara að koma mér út í garð að chippa. Fór í Bása áðan og það var snilld. Maður er alltaf betri á æfingarsvæðinu heldur en úti á velli, það sökkar

Takk, takk!
Kv. Hanna Lilja!



Við stelpurnar að fara að spila, og ég er að drive-a



Allar stelpurnar sem fóru í þessa æðislegu ferð, það vantar reyndar Röggu sem tók myndina...
24. maí 2006 klukkan 21:31
Hanna Lilja Sigurðardóttir
8 athugasemdir

Könnun

Jólabarn?