Skotland!
Já, ég er að fara til skotlands í fyrramálið, það er alveg ljóst. Fer með nokkrum krökkum í GR og hlakka bara misvel til. Ég veit ekki alveg hvernig þessi ferð verður þar sem að engin stelpa á mínum aldri verður með.. En heill hellingur af skemmtilegum strákum og litlu krúslurnar; Beggz og Ólafía!
Ég hef sjaldan þurft að fórna jafn miklu fyrir svona ferð en ég þetta skiptið þá fórna ég innlutningspartýi hjá Kristínu kórpíu!!! Afmæli hjá Þossa!!! Dilönu á broadway og síðast en ekki síst, afmælinu hennar Írisar!!! :( Freeeekar miklar fórnir í gangi! Enn það breytir því ekki að þessi ferð verður góð, ég veit það.. Erum að fara að spila á sjúkum völlum og skemmta okkur bara!
Ryderinn, Evrópa vann leiðinlega góðann sigur á Amerikumönnum.. Hf sjaldan horft jafn mikið á sjónvarp og síðustu helgi hehe...
Nanna komin í ruglið og lætur mig eyða laugardagskvöldum í að tala við sig í gegnum gluggann sinn útaf vitleysunni í sér :D
Kung Fu að fara að gera persónulegt met í vinnu, byrjar í dag og endar á sunnudag.
Svala komin með vinnu á Fridays og sést ekki lengur meðal vor. Hún eeeeeelskar Fridays.. Hún er líka að keyra um á bimmanum hans Þossa, freeekar töff!
Íris Ósk var að vakna
Steffanowich er hætt að sofa haha
Max er að missa sig í þrjóskunni hehe
Sanders er horfin!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Það er bekkjarútilega 14.-15. október nánar tiltekið í vetrarfríinu :/ Og verður skemmtunin endurtekin frá því fyr á árinu þegar gísli ætlaði að hlaupa heim, mér var hennt í pottinn og svo skutlað í bæinn og skilin eftir fyrir utan hjá nönnu um nóttina hahaha ég man
Bjórkvöld í kvöld á klúbbnum, var líka síðasta fimmtudagskvöld og ég skemmti mér konuglega, það var snilld. Byrjaði á fámennu EN góðmennu partýi hjá Gísla Loga og endaði með Celine Dion söng á Fallkonuveginum hehe..
Skólinn á fullu og ég hef aldrei skemmt mér jafn vel í skólanum og þessa dagana, erum að gera frábær verkefni sem fá áhugann og skoðanirnar til að skína
Ég og Karitas fórum í klippinu í skólann hennar Stebbu í dag.. Það var flipp, ekkert vandræðalegt andrúmsloft útaf sumum hehe
Ég var að fá símann hans pabba og hef aldrei tekið jafn margar myndir á síma og síðustu 10 tímana...
Blablabla ég er farin að pakka og svo er kóræfing á eftir :) Boj boj
28. september 2006 klukkan 20:47
Hanna Lilja Sigurðardóttir
Hanna Lilja Sigurðardóttir
hehe, ég verð að segja að laugardagskvöld með þér í gegnum glugga er ekki svo skemmtilegt.. Þú varst þó á skemmtilegri helmingnum =) En ég er að stíga upp úr ruglinu :P hehe
-Nanna