Síðasti dagur sumarfríisins á morgun :|

Hversu erfitt var að skrifa þetta, síðasti dagurinn á morgun.. Vakna klukkan 11, hitta Kung Fu og Stebbu kl. 12 og fara að versla ný skólaföt :D Jibbý jey ég hlakka til bomm bomm bomm! Ég sá kápu í Oasis í dag sem ég verð að kaupa, eldrauð og heit! Svo þarf ég buxur og skólatösku, bolir myndu ekki skemma neitt :D ..


Vestmannaeyjar, á skalanum 1-14, hversu skemmtilegt var í þessarri ferð??? 15!!!!!!!!!!!!!!! Shiiiii ég skemmti mér OF vel með stelpunum, það má með sanni segja að þessi ferð toppaði England í byrjun sumars! Við GR stelpurnar lenntum í 2. sæti og vorum ofsalega ánægðar með það eftir 3-0 sigur á GKG-ingum.. Leikur sem okkur var farið að kvíða fyrir! heheh.. Við stelpurnar skemmtum okkur konunglega og vorum m.a. teknar af löggunni; ég, sanders og ólafía :/ Af því að ég og sanders vorum að flippa með 10 kr. í spilakassa!!! Út í bíl og alles, við vorum næstum því farnar upp á stöð sko, löggan var svo fúl... Ég var svo skíthrædd við lögguna að Sanders sá bara um það að tala hahaha... næstum því! Shii siðasta unglingaferð okkar Sanders saman, næst er það bara Toyota mótaröðin tekin með prompi! :D

En já, skólinn á miðvikudaginn!!! Þvílíkt sjokk að þurfa ekki að vakna til að fara uppá völl og svona, hólý mólý, ég á eftir að vera lengi að venjast því að fara ekki í golf, season-ið er því miður á enda bráðum :'(  Þetta sumar er búið að vera svo stórskrýtið að það hálfa væri hellingur! Maður er engan vegin að átta sig á að þetta er bráðum búið.

Ég og Kaja kíktum í bæinn áðan og ég keypti mér flottasta bol í heimi. Þetta er bara plain svartur bolur sem að stendur á;
PABBI MINN ER LÖGGA
Freeekar töff!! Pabbi er allavega að fíla hann í botn :D


ég, kaja og nanna kíktum í heimsókn til salóme pæju áðan og spjölluðum um hitt og þetta stelpumálin alveg á hreinu og það er bara eitt að segja, hver annar en Salóme Tara fer og kaupir meðal fyrir gullfiskinn sinn af því að hann er veikur og liggur bara á bakinu :o hún er kolklikkuð :þ

Shiiii verð að fara að sofa, enda á nokkrum myndum frá Eyjum baby


















Takk fyrir ferðina stelpur, þetta var alltof gaman!!! Ég er með brjáluð fráhvarfseinkenni, og við vorum bara í 4 daga :o ...Hlakka til að sjá ykkur á æfingu :D

Endum á einni HAPPY Sanders!!!

22. ágúst 2006 klukkan 06:47
Hanna Lilja Sigurðardóttir
Sandra skrifar ...
Hanna ertu að grínast með HAPPY myndina.. ojjj.. hahaha :D Og myndin af þér og Helenu .. HAHAHA! En af hverju komstu ekki á æfingu lúði? ;)
23. ágúst 2006 klukkan 00:26
Hanna Lilja skrifar ...
Ég bara steingleymdi að það væri æfing í gær... mæti á morgun :D hahaha.. hélt bara að það væri komið sumarfrí hahaha
24. ágúst 2006 klukkan 00:48
Nanna skrifar ...
Djöfull ertu sæt :P
25. ágúst 2006 klukkan 21:07

Skrifa athugasemd

Könnun

Jólabarn?