Vestmann islands..
Jeeej baby, ein sveitakeppnin búin og næsta tekur strax við!
Við í kvennasveit GR stóðum okkur alls ekki með miklum agætum því að við urðum í 3. sæti eftir að hafa tapað á móti GKJ í undanúrslitum, lítil hamingja í þeirri keppni. Engu að síður þá skemmtum við okkur jafn vel og alltaf og mórallinn í liðinu var alveg eins góður og í fyrra og hitteðfyrra! ..Næsta sveitakeppni tekur strax við en þá eru það stelpurnar í GR sem ætla að trylla líðinn á Vestmannaeyjum og sýna fólki hvernig á að spranga og svona.. Eða ekki, ég er alls ekki góð í því hahahaha ég man síðast... Alger snilld, það er alltaf jafn gaman í Eyjum, enda uppáhaldsgolfvöllurinn þar (fyrir utan THE golfvöll, Grafarholtið)
Nú, eftir sveitakeppnina í gær skellti ég mér til Ingu systur pabba í smá eftirpartý því að á laugardaginn giftist hún honum Valtýr litla... Ok, ég semsagt fór þangað og fékk að borða og svona og fór svo að leika við hana Teddu litlu og við hlupum út á golfvöll, fórum í eltingaleik, útá róló og loks inn í herbergið hennar að dunda okkur í smá stund að ég hélt.. en þegar ég kom fram þá voru Inga, Valtýr og Thelma að borða og ég spurði í sakleysi mínu hvar mamma og pabbi væru, og Inga sprakk úr hlátri og sagði að þau væru sko löööngu farin heim, það væri liðin svona einn og hálfur tími síðan. hehehehe.. ég og Tedda semsagt gleymdum okkur svona rosalega og mamma og pabbi gleymdu að ég hefði komið með þeim!!!! Það munaði líka píkuhári á býflugu að ég hefði skallað þau bæði! hehehe
Svo um kvöldið fórum við nantmol í bíó á óvissusýningu í Regnboganum og lenntum við á að sjá mynd sem ég veit ekki einu sinni hvað heitir.. En hún fjallaði um stelpu sem var í erfiðri vinnu... bla bla, það var allavega sjúklega heitur karl í henni sem fékk hárin á mér til að rísa :) Auðvitað þurfti það að vera vondi gaurinn í myndinni eins og ávallt.
Í dag dró ég möggu með mér í smáralind sem að endaði auðvitað á að hún missti sig í kaupunum og fór svo kvartandi út.. Ég keypti mér meira að segja föt! Einn bleikrauðann bol í Vila, grænann Lacoste pólóbol, sjúúúklega heitur og svo svarta peysu einhvers staðar annars staðar..
Karitas og Svala skemmta sér eins og ég veit ekki hvað úti á Tene og síðast fékk ég þær fréttir að þær hefðu farið á strippstað og pantað sér einkadans hjá ljóshærðum kínverja og grétu svo úr hlátri allann tímann hehehehehe.. ég hlakka nú samt rosalega til að fá þær heim og byrja í skólanum og því öllu stússi á ný!
ein helgi eftir af keppni, svo byrjar skólinn og svo er það málið að fá einhverja til að fara í sumarbústaðarferð og lippa eilítið svona áður en aðaltörnið byrjar því að það er ekki mót hjá mér um næstu helgi úla úla úla... Hvað segiði stelpur??
Ætla að fara að horfa á Annie, sjúklega góð mynd!! See ya ;D

Djöfull sakna ég Betu rokk!!
15. ágúst 2006 klukkan 00:02
Hanna Lilja Sigurðardóttir
Hanna Lilja Sigurðardóttir
P.S. myndin hét the devil wears prada eða e-ð þannig ( og ótrúlegt hvað þú átt það til að laðast af vitlausum gaurum í svona myndum! meðan flestar stelpur eru heitar fyrir sæta, UNGA gaurnum sem er svo góður þá ert þú að slefa yfir pöbbunum eða þessum eldri ef ekki bara GÖMLU! .. hér má sjá dæmi um gaura sem heilla hana Hönnu::
http://www.imdb.com/gallery/ss/0317198/Ss/0317198/5135.jpg?path=pgallery&path_key=Firth,%20Colin
http://www.imdb.com/gallery/ss/0458352/Ss/0458352/411.jpg?path=gallery&path_key=0458352
er samt ekki að segja að þessi seinni sé ekki myndalegur en kommon Hanna! hahah