hahahahaha ég var hjá Nönnu áðan og var að skoða gamlar myndir, myndir síðan í 8. 9. 10. 1. og 2. bekk en þessar myndir voru snilld!! Maður tekur ekki eftir því sjálfur að fólk í kringum mann breytist og svo fær maður þvílíkt sjokk þegar maður kíkir yfir myndir. Ég setti nokkrar inná en þar sem það tekur svo langann tíma þá nennti ég því ekki lengi.  Ég gisti hjá Nönnu í nótt og við fórum í bíó í gær á American Dreamz hahahahahaha.. Ég hélt við værum á vitlausri mynd fyrsta hálftímann því að hún byrjaði alls ekki eins og trailerinn bendir til, en við Nanna ætluðum að labba út, myndin var ömurleg!! En svo þegar leið á myndina þá var hún ekkert smá fyndin. Nanna var ósammála mér. Svo fórum við til Nönnu og fórum útí móa hjá Voginum að flippa haha..Fórum svo heim til Nönnu að horfa á Sweet Home Alabama og Eiríkur fylliraftur kom í heimsókn og var alveg drepleiðilega fullur. Hann er að taka eitthvað tripp og var þetta víst 4. fulli dagurinn hans.

Ég og Nanna ákváðum líka í gær að fara í Bása í dag.. og í morgun skelltum við okkur í Kringluna og þegar við vorum á leiðinni heim þaðan, keyrðum við framhjá Skúla & Elíasi og buðum þeim með okkur í Bása. Elías beilaði en Skúli joinaði og skemmtum við okkur konunglega.

Fyrsta unglingamótið var á Þorlákshöfn um helgina, völlurinn var ágætur, ég var léleg, Valdís var góð og vann! Til hamingju með það Litli golfarinn hehe..

Ég og Valdís erum einmitt að plana Danmerkurferð í heimsókn til hennar Betu okkar í enda mánaðarins, vonandi.. Valdís vill frekar fara vikuna áður en EM er (það er að segja ef við verðum valdar í liðið) en það þýðir að ég myndi þurfa að sleppa meistaramótinu..... Heeeeeld... EKKI! Meistaramótið er það skemmtilegasta í heimi og ég tými ekki að sleppa því?

Svala aka Plasthaus er farin á Klaustrið og ég sakna hennar, kemur á óvart af því að við erum samlokur og höfum verið það of lengi fyrir svona aðskilnað.. Ég kenni henni um lélegt gengi á Þorlákshöfn hahaha djók!
Karitas, ég, Stefanía og Lovísa skelltum okkur í sund á Selfossi á laugardaginn og skemmtum okkur vel en fórum svo að fá okkur pitsu á Pizza67 og það var hreint og beint ógeðslegt!! Viðbjóður.

Senn líður að því að stelpurnar í kórnum fari til Ítalíu og ég varð að beila sem er verst í heimi.. En að æfa golf, það bíður bara upp á að velja og hafna. En skemmtið ykkur rosa vel úti stelpur mínar, og hugsið um mig þegar þið kaupið drasl af betlörunum, borðið Crépes, farið á markaðinn og hittið Febe og hina gæjana!!! Oooooooooh mig langar svo með!!! :'(  

Eeeennn.. Um helgina! Þá fer ég til Vestmannaeyja að keppa í golfi. Það verður gaman. Ég, pabbi, Pétur Óskar, Nína, Helena, Halli Heimis og einhverjir fleiri verðum saman í bústað og spilum 36 holur á lau. og 18 á sun. Ég, Helena og Biggi Már tökum flugið af því að við byrjum svo með sumarnámskeiðin á mánudaginn.. Hehehe ég er örugglega sú eina sem er ekki ennþá byrjuð að vinna.. Það er fínt. Sef út og fer svo í golf! Skemmtilegt líf.


Anna Margrét litla systir mín er að fara til Danmerkur á morgun í 2 vikur í dönskuskóla! Já, það er rétt.. Hún vill fá góða einkunn á samræmdu prófunum á næsta ári og er víst orðin það stressuð að mamma og pabbi ætla að senda hana í dönsku skóla í sumar. Hún fer með 2 góðvinkonum sínum og eru þær núna að deyja úr spenningi!

Vá ég er með einhvern titring í puttunum að blogga, Nanna ég vona að þetta sé nóg ;D

Góða nótt... Enda á skemmtilegri mynd frá því í fyrra sumar!  Ooog smá gáta; Fyrir hvað stendur þetta;

Mið. 7. júní kl. 18:00 - 21:00
Fim. 8. júní kl. 18:00 - 21:00
Fim 15. júní kl. 18:00 - 21:00



06. júní 2006 klukkan 05:09
Hanna Lilja Sigurðardóttir
Nanna skrifar ...
Þetta er svosem ásættanlegt Hanna mín =)
Það eru allavegin 1 setning sem fékk mig til að skella uppúr.. þær eru:
1)Svo fórum við til Nönnu og fórum útí móa hjá Voginum að flippa = vafasamt
2)Ég og Nanna ákváðum líka í gær að fara í Bása í dag = þetta er bara svo kjánaleg setning

Hanna þessi mynd var ömurleg.. þegar við löbbuðum útúr salnum að myndinni lokinni þá sagðir þú það.. svo þegra þú varst komin undir bert loftið þá var þetta orðin góð mynd,,, ég skil þig ekki :p


En yfir heildina litið þá er ég bara ansi sátt með þig =)
Hlaaaakka svoooo til 30.júlí :) ekki það að það komi málinu við :P

Hanna, ég vona að þetta sé oki ;D
06. júní 2006 klukkan 05:29
Valdis skrifar ...
ohh eg er brjaluð! skrifaði alveg hreint magnað kommen og siðan bara puff! og það kom ekki:( eeeen allavena! Takk Takk... var svo sem agæt fyrir utan 15, 16 og 17 a seinni deginum:D ha ha ha =o. (A) Anywhore... það er nattla gafulegra að fara ut vikuna aður þvi þa faum við fritt flug en eg er game i að fara ut 21 jun og koma heim 27!! flugið a 30.000 kall fram og til baka með öllum þessum sköttum og þvi drasli;)
Hey faum að vita hvort það verður farið a EM i dag! og hverjar fara og ef við 2 förum ekki þa er eg alveg buin að missa allt alit a You Know Who! Dreymdi samt i nott að Jodis hafi verið fyrst inn, siðan Signy og svo Ragna og svo eg =o. haha :P
Allavena... talaðu við Betu rokk i dag og lika við Margeir og lattu mig vita... gætir tekið Hringdu! Heyrumst! a þetta ;)
Veika Valdis kveður!
06. júní 2006 klukkan 19:54
Nanna skrifar ...
Hanna ætti að vita hvernig þetta hringdu í mig heyrumst virkar ;)
07. júní 2006 klukkan 14:12
Hanna Lilja skrifar ...
Valdís; hahahaa eins gott fyrir You Know Who að hafa valið okkur hehehe :D Og Nantmol vitleysa,,, Hvað er hringdu í mig heyrumst haha
08. júní 2006 klukkan 17:22

Skrifa athugasemd

Könnun

Jólabarn?