Akranes á morgun!

Ó já, það er að koma að þessu. Mótaröðin byrjar á morgun. KB-bankamótaröð fullorðinna byrjar á Akranesi á morgun og svo er það mótaröð unglinganna sem byrjar á Þorlákshöfn næstu helgi. Ég hlakka svona rosalega til og hef beðið óþreyjufull síðan síðasta mótið var haldið í fyrra í GKG! Þetta er reyndar síðasta árið mitt í unglingamótaröðinni og auðvitað tekur maður því bara með stakri prýði og stingur öllu gulli í vasann! Nei nei kannski ekki alveg, aðalmálið að sigra sjálfann sig og pæla ekkert í því hvað hinar stelpurnar eru að gera.
Það breytir því ekki að Ragga Sig, snillingur númer 1 fór holu í höggi á morgun á Akranesi þegar hún var að taka æfingahring. Frekar töff því að þetta var 6. holan og glöggir fatta að það er par4!!! Stelpan kann þetta! Til hamingju Ragga mín. Annars hefði ég óskað þess að hún hefði tekið þetta högg á morgun þar sem að við verðum saman í holli. Ég hlakka til, hlakka til, hlaaakka til!!!

Loksins, loksins fann ég flottar myndir af vinkonu minni Britney Spears.  Þær voru teknar fyrir stuttu þegar hún var í viðtali hjá Glamour Magazine og er hún stórglæsileg eins og sjá má á þessum myndum;






Og í dag fyrir 16 árum síðan þá fæddist gullmolinn okkar, hún Gyða í kórnum! Elsku Gyða til hamingju með daginn og njóttu hans í botn, maður verður ekki 16 ára á hverjum degi ;D :*

Hún er sko yndisfríð þessi stúlka og hefur allt með sér!



En já, ég ætla að fara að bögga Sveilplaster og gefa henni svolítið af hárinu á mér!

See ya, wish me luck tomorrow! :D

27. maí 2006 klukkan 00:14
Hanna Lilja Sigurðardóttir
Erla skrifar ...
SHIT HAnna ég gat ekki lesið neitt af þessu letrið var svo lítið:/

HAHAHA:D
28. maí 2006 klukkan 20:56
Valdis skrifar ...
takk fyrir klassahring a laugardaginn Hanna! ja kanski fyrir utan þarna 7undu 17andu og 18andu hahah:D suckað=o. en eg er ordin pirrud a einu og eg segi þer það þegar u ert næst a msn;) :(
30. maí 2006 klukkan 00:07
Hanna Lilja skrifar ...
úllalla valdís, ég er orðin forvitin! :D Sms-aðu á mig af siminn.is eða eitthvað þegar þú ert næst á msn og ég skal sjá hvað ég get gert :D Ok?
30. maí 2006 klukkan 08:20
Gyða skrifar ...
takk fyrir afmæliskveðjuna elskan.. en are you gonna be at my place at 9 o'clock tomorrow.. til að sýna snilli okkar í að syngja :D
01. júní 2006 klukkan 23:06
Nanna skrifar ...
hafði ég rétt fyrir mér Hanna? ertu búin að gefast upp? :(
02. júní 2006 klukkan 14:43
Hanna Lilja skrifar ...
Auðvitað mæti eg Gyða :D Og Nanna, nei.. Það er bara brjáálað að gera þessa dagana þú ættir að kannast við það ;)
02. júní 2006 klukkan 17:19
Valdis skrifar ...
æj eg man ekkert hvad eg var pirrud a! tad var allavena ekki tad sem eg sagdi ter i simann:D hahah
05. júní 2006 klukkan 03:58

Skrifa athugasemd

Könnun

Jólabarn?